Lágvaxnar, þéttar plöntur, ekkert mél á blöðum og blómum.
Lýsing
Laufin heil í þéttum hvirfingum við jörð, mynda smá saman þó nokkrar breiður. Blóm smá, á stöngulendum blaðlausra stöngla í fáblóma sveipum. Mjög blómvuljug.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
1, www.angusplants.co.uk/10%20primula%species.htm
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í skrautblómabeð, í þekju/breiður.
Reynsla
Harðgerð og auðræktuð planta. Ágæt sort. Í F1-F30 (20000322)