Lauf glansandi, eru stundum rauðbrún snemma vors. Blómin stök á stöngulendum, blöð fremur stór og gróf, tennt. Blómin purpurarauð.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting að blómgun lokinni.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð, í steinhæðir, í kanta.Þessar plöntur vaxa vel og blómstra mjög mikið í frjóum, rökum jarðvegi í hálfskugga. Það verður að fylgjast vel með þeim því sennilega verður moldin í kringum þær "þreytt". Það þarf því að skipta þeim á 3-5 ára fresti, annars drepast þær. Plantið þeim annars staðar eða skiptið um jarðveg á sama stað.