Laukplanta og fjölæringur. Trompetliljublendingur (Trumpet lily Aurelian hybrid).
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Purpurableikur með gult gin.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
(80)120-180 sm
Vaxtarlag
Uppréttir, laufóttir stönglar.
Lýsing
Lilium Pink Perfection er ekki talinn mjög harðgerð.Blómin eru trektlaga, mjög stór, álút, 150-300 mm breið, falleg, purpurableik með gult gin og kryddilm og vita út á við. Blómhlífarblöð með gula odda. Stönglar eru sterklegir, (80)120-180 sm háir, uppréttir. Lauf milligrænt, haldast græn allt sumarið.
Uppruni
Yrki / Cultivar.
Heimildir
1, Upplýsingar af umbúðunum,http://www.shelmerdine.com, http://www.davesgarden.comhttp://www.answers.yahoo.comhttp://www.tonkinsbulbs.com.auhttp://www.plantfinde.sunset.comhttp://www.americanmeadows.com
Fjölgun
Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum. Oftast fjölgað með laukum sem myndast neðanjarðar.
Notkun/nytjar
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur eða í hálfskugga. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Laukar gróðursettir haust eða vor, 15 sm djúpt og með 25 (60-90) sm millibili, plantað 3 sinnum dýpra en þeir eru breiðir, fallegt að hafa 3 eða fleiri lauka saman með 15 sm millibili. Vökvið þegar gróðursett er.Góð í beðjaðra með fjölæringum eða runnum, ekki síst rósum og til afskurðar. Hættir til að verða lauflaus á neðstu 30 sm og því ætti að gróðursetja lágvaxnar tegundir næst henni. Vex hratt og vel og það má búast við að hún lifi a.m.k. 10 ár. Nokkuð þolin gagnvart stórborgarmengun. Stönglarnir geta þurft stuðning ef plantan stendur áveðurs eða vex í mjög næringarríkum jarðvegi.Mjög góð til afskurðar.
Reynsla
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1989, dó 1992. Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1993, dó 1996. Annar laukur gróðursettur í Lystigarðinn 2003, blómstraði í september 2010 og hafði myndað nokkra nýja stöngla síðan 2003, er á góðum stað móti sól og þar sem vel er borið á og vökvað á sumrin.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Trompetliljublendingar (stundum nefndir Árelíublendingar (Aurelian Hybrids) eða önnur nöfn eru notuð), eru stórar, hávaxnar trompetliljur eru komnar af kóngaliljunni (Lilium regale), hvítri, villtri lilju frá Kina, þ. e. þær eru upprunnar úr víxlfrjóvgun L. regale, L. sulphureum eða L. sargentiae × L. henryi og L. aurelianse nefna sumar heimildir (en hvorki L. auratum né L. speciosum). Blómin eru trektlaga eða skállaga, vita út á við eða dálítið niður á við og ilma oftast mikið, oft sérstaklega mikið á nóttunni. Allar trompetliljurnar eru dásamlegar til afskurðar. Þær verða hávaxnar og oft þarf að binda við þær, þar sem fullvaxinn stöngullinn getur borið meira en 15 stór blóm. Blómlitir eru hvítir og rjómalit yfir í gult og bleikt, margar með græna, brúna eða purpuralita slikju á ytri borði. Plönturnar eru oftast 90-180 sm há, hver stöngull ber 6-15 blóm.