L. americana Michx; L. microcarpa Desf., L. alaskensis W. F. Wight.
Lífsform
Lauffellandi barrtré.
Kjörlendi
Sól. Þrífst ekki í skugga.
Blómalitur
Karlblóm gul, kvenblóm græn, rauðleit eða purpura.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
10-15 m
Vaxtarhraði
Meðalhratt.
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, allt að 18-20 m hátt í heimkynnum sínum, ungt er það mjó-keilulaga. Börkur ungra trjáa silfurgrár, á gömlum trjám brúnn og losnar af í þunnum hreistrum. Krónan keilulaga, greinar láréttar, útstæðar smágreinar drúpandi. Ársprotar grannir, hárlausir, döggvaðir, seinna glansandi rauðleitir eða daufbrúnir. Dverggreinar mjög stuttur, svartar. Brum dökkrauð, dálítið kvoðug.
Lýsing
Barrnálar allt að 12-30 saman í knippi, eins og pensill, 20-30 mm langar, ljósgrænar, 0,5 mm breiðar, með greinilegan kjöl á neðra borði og 2 loftaugarendur. Blómin eru einkynja (hvert einstakt blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns, en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni). Vindfrævun. Könglar eru mjög smáir, egglaga, 10-15 mm langir, ungir fjólublá-rauðir, gamlir gulbrúnir og með 15-20 köngulhreistrum, sem eru stundum næstum kringlótt, jaðar hreistranna lítið eitt innsveigður og fín-óreglulega bylgjaðar ofan. Hreisturblöðkur litlar, ná ekki út úr könglinum. Fræ 1,5 mm löng, vængur 5 mm langur.
Uppruni
Norður N Ameríka (Alaska-Kanada).
Harka
Z2 Ekki viðkvæmt fyrir frosti.
Heimildir
= 1,2,7, http://www.pfaf
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í beð. Tegundin þolir mjög vel kulda þegar hún er í dvala, en hlýindakaflar að vetrinum geta valdi því að trén fari að vaxa á óheppilegum tíma og þeim hættir þá við skemmdum vegna frosta síðla vors og kaldra næðinga. Gróðursett til timburframleiðslu í Evrópu. Vex venjulega hægt.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til eitt tré sem sáð var til 1988, kelur dálítið flest ár. Nokkur yngri eru í uppeldi svo sem eitt sem sáð var til 1998 og gróðursett var í beð 2004, og eitt sem sáð var til 2003 og annað sem sáð var til 2006, bæði eru enn í sólreit. Á Vöglum í Fnjóskadal standa nokkur tré sem gróðursett voru 1957. Þau hafa vaxið þar betur en annað lerki. Ljúka vexti snemma.Mýralerki er stundum ruglað saman við L. × pendula sem er allt öðruvísi í vextinum og með stærri köngla. Þessi tegund hefur lítið skrautgildi nema á köldum, blautum, illa framræstum stöðum þar sem það þolir við. Sag af viðnum er þekkt fyrir að geta valdið exemi hjá sumum.