Aðalrætur sívalar og trefjóttar, nokkrar hafa stækkað dálítið. Lauf 30 x 1-2,5 sm, sigðlaga, mjúk.
Lýsing
Blómstilkar uppréttir, ógreindir, dálítið hærri en laufbrúskurinn. Blóm 8-10 sm, fá, ilma, gul, í þéttum klösum, með bollalaga stoðblað sem lykur um stilkinn. Blómhlífarpípa allt að 2 sm, blómhlífarblöð allt að 2,5 sm.
Uppruni
N Kína, Japan, A Rússland, Kórea.
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting að vori, sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, í blómaengi, við tjarnir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2012 og gróðursett í beð 2015. Ágæt til afskurðar, er sjaldan skipt. Of mikill áburður dregur úr blómgun (HS).