Geranium sanguineum

Ættkvísl
Geranium
Nafn
sanguineum
Íslenskt nafn
Blóðgresi
Ætt
Blágresisætt (Geraniaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúp purpurarauð, grunnur hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar brúska, með dálítið útbreidda jarðstöngla.
Lýsing
Grunnlauf fá, ekki jafn djúpskipt og stöngullaufin. Stöngullauf bogadregin að útlínum til, mjög djúpskipt í 5 til 7 mjóa flipa, lítið eitt tennt, skiptingin þríflipótt, ytri flipar útglenntir, 5-10 sm breið, sum axlablöð samvaxin. Blómskipunin útbreidd, kvíslskúfar ein-blóma, blómin oftast upprétt, 40 mm í þvermál, blómskipunarleggir 7 mm Bikarblöð 10 mm, oddur 3,5 mm. Krónublöð 21 x 17 mm, hjartalaga, oftast sýld, djúp purpurarauð, grunnur hvítur, æðar dýpri, frjóhnappar styttri en bikarblöðin, grunnur úttútnaður, oddar með sama lit og krónublöðin. Frjóhnappar bláir, stíll 5 mm, fræni 4,5 mm, rautt eða lifrautt. Ung aldin upprétt, leggir uppréttir, trjóna 30 mm, frævur 4,5 mm, fræjum slöngvað burt.
Uppruni
Evrópa, Kákasus, N Tyrkland.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, í breiður.
Reynsla
Harðgerð, mjög falleg en dálítið breytileg tegund.
Yrki og undirteg.
Mörg yrki eru til, svo sem:'Album' blómin hvít.v. striatum Weston. Smávaxin jurt, blómin ljós lifrauð, með mjög áberandi æðar.