Lítill runni allt að 25 sm hár. Sprotar eru jarðlægir, ungar greinar hárlausar. Lauf allt að 8 mm, 4 saman í kransi, ydd eða broddydd. Blómskipunin allt að 10 sm, endastæð, í dálítið hliðsveigðum, laufóttum klasa. Blómleggir allt að 3 mm. Bikarflipar lensulaga. Króna allt að 6 mm, sívöl, flipótt, fliparnir allt að 3 mm eða meir, uppréttir, mjó-aflangir, purpurableikir. Fræflar standa út úr blóminu.
Uppruni
A Evrópa (M-Alpar, NV Ítalía, NV Júgóslavía).
Harka
Z3
Heimildir
1, http://www.tititudorancea.com
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð með súrum eða ekki súrum jarðvegi, í ker og kassar.Vorlyngið er ræktað víða erlendis vegna blómanna sem koma að vetrinum.Það er ólíkt öðrum klukkulyngstegundum að það þolir jafnt kalkríkan jarðveg sem súran og er því auðræktað.
Reynsla
Ekki mikið reynd enn sem komið er en er komin í beð, klippa eftir blómgun.Plöntunum var sáð í Lystigarðinum 1991 og þær voru gróðursettar í beð 2001. Yfirleitt ekkert kal gegnum árin, blómstra flest ár.
Yrki og undirteg.
Fjölmörg yrki eru til, yfir 100 talsins, ýmsir blómlitir, eru í ræktun erlendis, ekkert af þeim er í garðinum enn sem komið er.