Velkomin í rómantíska stemningu, dans og ljúfa tóna í upplýstum Lystigarði á Rökkurró.
Setningarhátíð Akureyrarvöku fer fram á föstudagskvöldið 30. ágúst og hefst dagskráin kl. 20:30.
Fram koma meðal annars Dansskóli Steps, Söngkvartettinn Ómar, Brasskvintett Norðurlands, Sunneva Kjartansdóttir dansari og að lokum Svavar Knútur. Nánari upplýsingar um viðburðina má finna hér.
Við vonum að gestir njóti notalegs kvölds og um leið sýni garðinum virðingu, passið vel upp á plönturnar og skiljið ekki eftir rusl.
með kveðju
starfsfólk Lystigarðsins