Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Westerland'
Höf.
(Kordes 1969) Þýskaland.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Korlawe, Rosa 'Korwest'.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Appelsínugulur með aprikósulitri slikju.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
allt að 240 sm eða hærri.
Vaxtarlag
Foreldrar: Friedrich Worlein x Circus. Westerland er 20. aldar stórblóma klifurrós eða upprétt runnarós, kröftug, um 240 sm (300-360 m) há og 120 sm breið, lotublómstrandi.
Lýsing
Blómin skrautleg, upprétt, í klösum, stór, opin, hálffyllt-léttfyllt, 18-26 krónublöð, appelsínugul með aprikósulitri slikju, með góðan ilm. Krónublöðin eru gul á neðra borði. Laufin eru stór, mjúk, dökk græn. Þau eru bronslituð á vorin á meðan þau eru ung og þau hafa mikla mótstöðu gegn sjúkdómum.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Heimildir
http://www.backyardgardener, http://www./wyevale.shootgardening.co.uk/sitePlant.php?plantid=22982-name=rose-westerland, http://www.hesleberg.no, http://www.rose-roses.com/rosepages, davesdardening.com/guides/pf/go/69469/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
Notkun/nytjar
Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga. Þrjár plöntur á m². Notuð í limgerði, í beð, nokkrar saman í þyrpingu eða á tígulgrind. Hægt að nota sem vafrós/klifurrós ef hún er ekki klippt.
Reynsla
Rosa Westerland var keypt í Lystigarðinn 2005, höfð sunnan undir gróðurhúsinu, misfórst í geymslu veturinn 2006-2007.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Viðurkenningar: Annerkante Deutch Rose 1974, Royal National Horticultural Society Award of Merit 1993