Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Stanwell Perpetual'
Höf.
(Lee 1838) England.
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól og skjól.
Blómalitur
Blá-rauðbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
100-150 sm
Vaxtarlag
Stanwell Perpetual er villiblendingur líklega milli R. pimpinellifolia (=the Burnet eða the Scotch rose) og R. damascena bifera. Runninn er þéttvaxinn, með grannar greinar, bogsveigðar og þyrnóttar, þyrnar þéttir og stórir. Runninn er meðalstór, 150 sm hár og um 120 sm breiður og vex mest á breiddina.
Lýsing
Laufið minnir á lauf þyrnirósarinnar, er grágrænt, stundum flekkótt og hefur mjög mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum. Lotublómstrandi, blómstrar alveg fram í frost. Blómin sýna greinileg merki um að vera í ætt við blóm R. damascena-rósanna. Blómin meðalstór, opin, hálffyllt-ofkrýnd, dauf blárauð-bleik þegar þau springa út, verða bláhvít þegar þau fölna. Blómin ilma rétt eins og gömlu garðrósirnar, ilma mikið og ilmurinn er góður.
Uppruni
Yrki.
Sjúkdómar
Með mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum svo sem svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
Harka
Z3
Heimildir
Petersen, V. 1981: Gamle roser i nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981., http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.html, http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/scotsroses.html, www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP,www.telegraph.co.uk/gardening/howtogrow/3316064/How-to-grow-Stanwell-Perpetual-rose.html, davesgarden.com/guides/pf/go/64995/#b
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveifgræðsla.
Notkun/nytjar
Tvær plöntur á m², notuð í limgerði, í beð og í almenningsgarða og víðar. Áburður í byrjun vaxtartímans.
Reynsla
Rosa Stanwell Perpetual var til í Lystigarðinum, keypt 1996 og drapst 1996, önnur sem var keypt 1996 og lifði til 1999. Enn var planta 2006, hún vex vel og blómstraði mikið 2008, vex þokkalega vel 2009 en blómstraði ekki.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR: Harðgerð planta og nægjusöm, falleg að haustinu, engir nýpur. Getur fengið litla svarta bletti á laufið en það er ekki svartrot. Rauður eða brúnn litur á blöðunum er ekki sjúkdómur heldur einkenni á tegundinni.Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga. Ein mest framúrskarandi rósin af gömlu garðrósunum. Fannst í garði Ortes Stanwell í Middlesex á Englandi. Perpetual þýðir endalaus eða blómstrar lengi.