Rosa

Ættkvísl
Rosa
Yrki form
'Hurdalsrose'
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
'Hurdal', 'Giessenrose'.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur eða dökkbleikur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
Allt að 300 sm
Vaxtarlag
Uppruninn er óþekktur og hvorki er vitað hver kynbætti þessa rós né hvenær. Rosa 'Hurdalsrose' er R. alba runnarós, upprétt, mjög kröftug og verður allt að 300 sm há og álíka breið. Lítið um þyrna.
Lýsing
Blómin eru bleik eða dökkbleik, meðalstór, hálffyllt, ilma ekki. Blómviljugur, blómstrar einu sinni á sumri, blómgunin stendur yfir í um 3 vikur. Blómgunin nær yfir styttri tíma ef sumarið er heitt. Laufin eru dæmigerð R. alba-lauf. Plantan myndar mikið af rótarskotum.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Thørgersen, C.G. 1988: Synopsis of Broadleved Trees and Shrubs cultivable as Ornamentals in Boreal Sweden Umeåhttp://www.druer.no/sorteliste roserhttp://www.hesleberg.nohttp://www.roseexpert.no/nordic.htm
Fjölgun
Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar.
Notkun/nytjar
Talin skuggaþolin af sumum, öðrum ekki, er harðgerð og nægjusöm.Þrífst best í svölu loftslagi, jarðvegur þarf að vera miðlungi næringarríkur og með jafnt rakastig. Ein planta á m². Höfð stök, í runnabeð og í skemmtigarða. Talin þurfa litla umhirðu t.d. í Noregi.
Reynsla
Í Lystigarðinum var til planta frá 1990 sem tórði til 1994. Önnur planta, aðkeypt 2006, vex mikið og blómstrar talsvert 2008, óx vel og kom með fáein blóm 2009.
Útbreiðsla
AÐRAR UPPLÝSINGAR:Rósin hefur verið þekkt í Noregi síðan í byrjun síðustu aldar. Það fylgir sögunni að prestssonur hafi komið með hana til Noregs frá Giessen í Þýskalandi.