Rosa webbiana

Ættkvísl
Rosa
Nafn
webbiana
Íslenskt nafn
Pararós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
R. unguicularis Bertol., R. guilelmi-waldemarii Klotzsch.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ljósbleikur, rauður eða hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
150-200 sm
Vaxtarlag
Villirós. Runninn er einblómstrandi, 150-200 sm hár. Greinar grannar með fáum beinum þyrnum, stöku sinnum með fagur-appelsínugulum þyrnum. Þyrnarnir í pörum. Smálauf 5-9, kringlótt til breiðegglaga, 1,5-2 sm löng, hárlaus neðan eða ögn hærð, einsagtennt, heilrend við grunninn og snubbótt. Stilkar oft kirtilþornhærðir. Axlablöð kirtilrandhærð.
Lýsing
Blómin 1-3, ljósbleik, 4-5 sm breið með mikinn hindberjailm. Bikarblöð kirtilhærð, oft hærð á neðra borði, breikka oftast við oddinn, styttri en krónublöðin, langæ. Nýpur fjölmargar, smáar, 2,5 sm langar, flöskulaga, hárauðar-appelsínurauðar.
Uppruni
Himalaja, A Asía.
Harka
Z6
Heimildir
Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm
Fjölgun
Græðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í blönduð trjá- og runnabeð.
Reynsla
Rosa webbiana var sáð í Lytigarðinum 1900, plantað í beð 1994. Kól ögn framan af, lítið sem ekkert kal síðustu árin. Vex vel, lítið um blóm.