Rosa nitida

Ættkvísl
Rosa
Nafn
nitida
Íslenskt nafn
Brúðurós
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
50-70(-90) sm
Vaxtarlag
Villirós. Uppréttur runni um 50-70 sm hár og álíka breiður, einblómstrandi. Stilkar þétt þornhærðir, þyrnar grannir, 3-5 mm langir, rauðleitir. Smálauf 7-9, lang-oddbaugótt, 1-3 sm löng, dökkgræn, glansa mikið á efra borði, verða fallega djúp brúnrauð að haustinu.
Lýsing
Blómin smá, 4-5 sm breið, stök eða nokkur saman, bleik með gula miðju, ilma mikið. Bikarblöð upprétt, mjó, heilrend, kirtilþornhærð, blaðleggirnir líka kirtilþornhærðir. Nýpur glansandi, hnöttóttar, 1 sm breiðar, skarlatsrauðar, dálítið þornhærðar.
Uppruni
Austur N-Ameríka.
Harka
Z3
Heimildir
Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburghttp://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,en.wikipedia.org/wiki/Rosa-nitida, davesgarden.com/guides/pf/go/81620/#b
Fjölgun
Skifting á rótarhnausnum. Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar. Sáning úti að haustinu (forkælt fræ), sáning í ílát, haft í sólreit eða óupphituðu gróðurhúsi.
Notkun/nytjar
Í beðkanta. Þolir allt að -40°C.
Reynsla
Brúðurósinni var sáð í Lystigarðinum 1989 og gróðursett í beð 1994. Þessi planta kelur dálítið, en vex vel. Rósinni var sáð aftur 1997 og gróðursett í beð 2004. Sú planta vex talsvert og blómstraði 2008 en ekki 2009.