Ribes × magdalense

Ættkvísl
Ribes
Nafn
× magdalense
Íslenskt nafn
Magdalenurifs
Ætt
Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur og bleikur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
Allt að 2 m
Vaxtarlag
Hávaxinn og þyrnóttur runni, mikil greinaflækja.
Lýsing
R. leptanthum × R. uva-crispa.Runninn er millistig milli beggja foreldranna, þó líkari R. leptanthum, allt að 1,5 m hár. Blómin bleik og hvít, berin svört, sporvala, með aðeins örfáein spírunarhæf fræ. Kom fram af sjálfu sér 1929.
Uppruni
Náttúrulegur blendingur.
Harka
6
Heimildir
1,7
Fjölgun
Græðlingar.
Notkun/nytjar
Í runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur, sú eldri kom frá Grasagarðinum í Reykjavík 1982, hin er frá Gróðrarstöðinni Kjarna 2000. Þær hafa kalið lítillega flest árin, en eru vöxtuglegar, allt að 2 m háar 2011.