Primula amoena

Ættkvísl
Primula
Nafn
amoena
Íslenskt nafn
Lofnarlykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Samheiti
#NAME?
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Rauðfjólublár, fjólublár.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Lofnarlykill er líkur og náskyldur huldulykli sem er með gul blóm. Lauf upprétt þegar þær eru ungar en mynda blaðhvirfingu með aldrinum.
Lýsing
Mjög breytileg tegund, en blómin eru alltaf blá til fjólublá.Lauf 5-16 x 2-4 sm, laufleggir með himnukenndan væng, mjög breytileg að lögun, oddbaugótt, egglaga, öfugegglaga, spaðalaga, óreglulega bogtennt eða smátennt, skærgræn ofan, oftast þétt dúnhærð neðan, stundum næstum hárlaus, oddur bogadreginn eða snubbóttur, grunnur mjókkar venjulega að laufleggnum, stundum hjartalaga eða þverstýfð við grunninn. Blómskupunarleggur 5-15 sm, lang- og mjúkhærður, blómskipunin oftast sveigð til hliðar, með 2-18 blóm, oftast með 6-10 blóm, stoðblöð 2-8 mm, band-lensulaga, dúnhærð, blómleggir 5-40 mm, ± upprétt. Bikar pípulaga með áberandi gáróttur, 8-12 mm, flipar egglaga til lensulaga, randhærðir. Króna 1,5-2,5 sm í þvermál, flöt eða grunn-trektlaga, hringlaga, fjólublá, ljósgráfjólublá til purpura með gult auga, (hvítingjar eru þekktir), flipar öfugegglaga djúp-framjaðraðir. Fræhýði lengra en bikarinn.
Uppruni
Kákasus, fjöll NA Tyrklandi.
Sjúkdómar
Engir.
Harka
5
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Skipting að hausti, skipta að minnsta kosti annað til þriðja hvert ár, sáning að vori, fræ þarf ekki kuldameðferð.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
Reynsla
Auðræktuð og langlíf tegund, ef þess er gætt að halda henni í góðum vexti með tíðri skiptingu.
Yrki og undirteg.
Ýmsir blendingar til, enda blandast tegundir af þessari deild mjög auðveldlega og margir kynblendingar eru í sölu hjá garðplöntustöðvum.