Potentilla inclinata

Ættkvísl
Potentilla
Nafn
inclinata
Íslenskt nafn
Hrjósturmura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Potentilla canescens Besser.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Votlendi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júní-september.
Hæð
- 40 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur, ullhærður eða dúnhærður með upprétta eða uppsveigða blómstöngla.
Lýsing
Fjölæringur með grófar, sívalar rætur. Blómstönglar uppréttir eða uppsveigðir, 12-40 sm háir, sem eru ásamt laufleggjm ullhærðir, dúnhærðir og lítið eitt lóhærðir. Grunnlaufin hafa oft visnað að blómgun lokinni, axlablöð brún, himnukennd, ullhærð á neðra borði. Laufblaðkan er handskipt með 5(-7) smálauf, smálaufin eru græn á efra borði, öfugegglaga, aflöng eða öfugegglaga-lensulaga, gráloðin-lóhærð á neðra borði, verður hárlaus með tímanum á efra borði með löng, aðlæg hár, grunnur fleyglaga, jaðrar með grófar reglulegar sagtennur, snubbótt. Legglaufin lík grunnlaufunum en minni og laufleggurinn styttri eða enginn, axlablöðin græn, egglensulaga, laufkennd,lóhærð og ullhærð neðan, heilrend eða með 1-2 sagtenntur. Blómskipunin lík hálfsveip-skúf eða skúf- eða puntlík, lotin með mörg blóm. Blómin er um 1 sm í þvermál, blómleggur 1-1,5 sm langur, lítið eitt lóhærður og ullhærður. Bikarblöð þríhyrnd-lensulaga til aflöng-egglaga, hvassydd til odddregin, utanbikarblöð band-lensulaga, syttri en eða (sjaldan) jafnlöng og bikarblöðin ullhærð eða dúnhærð á neðra borði, ydd. Krónublöð gul, egglaga, ögn lengri en bikarblöðin, oddur langyddur eða næstum bogadreginn. Stíll hálfendastæður, grunnur sver, fræni ögn sverari en neðri hlutinn. Smáhnotir hrukkóttari.
Uppruni
Kína M Asía, M & S Evrópa.
Heimildir
Flora of China www.eFloras.org
Fjölgun
Sáning eða skipting,
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð.
Reynsla
Ein planta er til í Lystigarðinum, sem sáð var 1986.