Pilosella aurantiaca

Ættkvísl
Pilosella
Nafn
aurantiaca
Íslenskt nafn
Roðafífill
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Hieracium aurantiacum L.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Appelsínugulur til appelsínurauður.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
- 65 sm
Vaxtarlag
Ofanjarðarrenglur laufóttar. Lauf ofan jarðar eða neðan mörg, allt að 20 sm, öfuglensulaga til oddbaugótt, snubbótt til ydd, mjókka smám saman að grunni, fölgræn eða bláleit með ógreind og kirtlalaus hár. Stöngullauf 1-4.
Lýsing
Körfur 2-25 allt að 2,5 sm í þvermál í endastæðum hálfsveip, blómstilkur allt að 65 sm hár með dökk löng hár. Reifablöð allt að 3 mm breið, lensulaga, snubbótt til ydd. Blómin appelsínugul til appelsínurauð.
Uppruni
Evrópa, illgresi í N Bandaríkjunum og við Kyrrahafsströndina.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í beð, í sumarbústaðaland, í blómaengi, þrífst vel í grasi (hóflega háu), í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur sem sáð var til 1991, 1993 og 1994 og gróðursettr í beð 1991, 1993 og 2001, allar þrífast vel og sá sér ótæpilega. Harðgerð tegund sem þrífst vel í Lystigarðinum og víðar (er undir Hieracium aurantiacum í bók HS)