Lonicera tatarica

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
tatarica
Yrki form
'Discolor
Íslenskt nafn
Rauðtoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Ljósbleikur, krónublöð með djúprauða jaðra og bak.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
- 4 m
Vaxtarlag
Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
Lýsing
Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Krónan ljósbleik innan, jaðrar og bakhlið djúprauð.
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
1, 7
Fjölgun
Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í klippt eða óklippt limgerði, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1981. vex vel, kelur lítið