Lonicera × notha

Ættkvísl
Lonicera
Nafn
× notha
Yrki form
'Alba'
Íslenskt nafn
Skintoppur
Ætt
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor-sumar.
Hæð
2-4 m
Vaxtarlag
Kröftugur, uppréttur, lauffellandi, uppréttur runni. Ungir sprotar hárlausir eða næstum hárlausir.
Lýsing

Laufin allt að 6 sm, egglaga til lensulagaoddbaugótt, odddregin, bogadregin eða þverstýfð við grunninn, lítið eitt dúnhærð til næstum hárlaus neðan. Blómin hvít tvö og tvö saman. Krónan 18 mm, með tvær varir, pípan útvíkkuð. Berin rauð.Blómin hvít.

Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Vettrar- eða sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð bep, í þyrpingar, í kanta.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta, og tvær sem sáð var til 1979 og gróðursettar í beð 1981 og 2006. Sú elsta fellir lauf snemma og allar þrífast vel og kala mjög lítið.