Linaria purpurea

Ættkvísl
Linaria
Nafn
purpurea
Íslenskt nafn
Roðagin
Ætt
Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól (hálfskuggi).
Blómalitur
Fjólublár með purpura slikju.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
50-70 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, hárlaus og bláleit, stönglar 20-60 sm, uppsveigðir til uppréttir, oft greinótt ofantil.
Lýsing
Lauf í krönsum neðantil á stönglinum, stakstæð ofantil, 20-60 x 1-4 mm, bandlaga, sljóydd. Blómskipunin klasi, grönn, teygð, fremur þétt, blómleggur 1,5-4 mm. Bikar 3 mm, flipar jafnstórir, band-lensulaga, hvassydd. Króna 9-12 mm, fjólublá með purpura slikju, sporinn krókboginn, 5 mm. Aldin 3 mm, fræ þrístrend, 1-1,5 mm, sortna, hrukkótt-hrjúf.
Uppruni
S Evrópa (M Italía - Sikileyjar)
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð á skýldum stöðum.
Reynsla
Meðalharðgerð, gott að eiga plöntur til vara í sólreit yfir veturinn.
Yrki og undirteg.
'Canon J. Went' með rósbleik blóm, var reynd í Lystigarðinum en lifði ekki lengi.