Hacquetia epipactis

Ættkvísl
Hacquetia
Nafn
epipactis
Íslenskt nafn
Skógarslæða
Ætt
Sveipjurtaætt (Apiaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
- 7 sm
Vaxtarlag
Smávaxin fjölær fjallajurt, sem myndar hnaus, allt að 7 sm há, oftast lægri.
Lýsing
Laufin hvirfingarlauf, handskipt, hálf-kringlótt að ummáli, smaragdsgræn, hárlaus, separ 3, fleyglaga, 2-3-flipótt. Blómskipunin með axlegg, jafnlöng eða lengri en laufin. Sveipir einfaldir, leggstuttir, með 5-7 öfugegglaga, skærgrænum, stoðblöðum, sem eru allt að 2 sm löng, lengri en blómin og koma fyrir sjónir sem stakt blóm með græn krónublöð og með skjöld af gulum fræflum blómin gul.
Uppruni
Evrópa.
Harka
7
Heimildir
= 1
Fjölgun
Auðfjölgað með skiptingu.
Notkun/nytjar
Við tjarnir og læki, sem undirgróður, undir tré og runna.
Reynsla
Þrífst bærilega hérlendis (H.Sig.).