Fritillaria meleagris

Ættkvísl
Fritillaria
Nafn
meleagris
Íslenskt nafn
Vepjulilja
Ætt
Liljuætt (Liliaceae).
Lífsform
Laukur, fjölær.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Purpuralitur, hvítleitur með tígulmynstri.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Laukur 2,5 sm í þvermál, kúlulaga, úr 2 stórum hreisturblöðum. Stönglar 12-30 sm háir.
Lýsing
Lauf 6-13 sm, 4-6, stakstæð, bandlaga til bandlensulaga, hvassydd. Blómin stök eða stöku sinnum 2 saman, mjög breið-bjöllulaga. Blómhlífarblöð 30-45 sm, þau innri dálítið breiðari en þau ytri, öll hvassydd, purpura, hvít eða nokkuð bleikmenguð og öll tígulótt til hreinhvít. Hunangskirtlar 7-10 mm langir, hornréttir á bjölluna, bandlaga, grænir. Frjóþræðir nöbbóttir. Stíll 13-16 mm, 3-greindur, greinar 2-5 mm, nöbbóttir. Fræhýði ekki með væng.
Uppruni
Evrópa.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning. Laukar lagðir í september á 7-10 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð.
Reynsla
Harðgerð planta sem er víða í ræktun, vex best í raklendi og er fallegust í stórum breiðum.