Euonymus europaeus

Ættkvísl
Euonymus
Nafn
europaeus
Yrki form
Albus
Íslenskt nafn
Beinviður
Ætt
Beinviðarætt (Celastraceae).
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Síðla vors - snemmsumars.
Hæð
1-2 m (-3 m)
Vaxtarlag
Sjá lýsingar hjá aðaltegund.
Lýsing
Lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Aldin hvít.
Uppruni
Yrki.
Harka
3
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sumargræðlingar, vetrargræðlingar, sveiggræðsla.
Notkun/nytjar
Í blönduð beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2011, er í sólreit 2013.