Erigeron x hybridus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
x hybridus
Íslenskt nafn
Garðakobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Réttara nafn: Erigeron speciosus
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur, fjólublár, dökkblár / gul miðjublóm.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-70 sm
Lýsing
Stönglar grannir og beinir, 4-9 körfur þétt saman efst. Tungukrónur óvenju margar eða 75-150, ýmsar sortir í ræktun. Laufin mjólensulaga, oddmjó, heilrend, randhærð.
Uppruni
Garðablendingar.
Harka
6
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning, mikill fjöldi sorta í ræktun.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, fjölæringabeð, til afskurðar.
Reynsla
Harðgerður-meðalharðgerður.Ath. sömu sortir og taldar eru upp með Erigeron speciosus (Garðakobba). Í dag er fremur venjan að skrifa yrkin ein og sér og sleppa x hybridus og/eða speciosus en undir þeim nöfnum voru þau gjarnan hér áður og fyrr.
Yrki og undirteg.
Fjólubláir eru t.d. 'Adria', 'Dunklester Aller', 'Violetta' og 'Schwarzes Meer'; rósrauðir eru t.d. 'Foersters Liebling', 'Marchenland', 'Rosa Triumph','Rotes Meer'; dökkrauð, 'Sommerneuschnee' og 'Quakeree' hvítar, 'Lilofee' og 'Wuppertal' lillabláar o. fl. mætti telja upp eins og myndirnar bera með sér.