Erigeron pinnatisectus

Ættkvísl
Erigeron
Nafn
pinnatisectus
Íslenskt nafn
Fjaðurkobbi
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Erigeron compositus var. pinnatisectus A. Gray
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Fölfjólublár / gulur hvirfill.
Blómgunartími
Síðsumars.
Hæð
Allt að 10 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur með upprétta blómstöngla, allt að 10 sm hár. Stönglar ögn kirtilhærðir með fáein útstæð hár.
Lýsing
Flest laufin grunnlauf, bandlaga, fjaðurskert, næstum alveg hárlaus. laufleggir með stinn randhár, stöngullauf 1-3, smá, bandlaga. Krónan stök, aldinstæði allt að 13 mm, smáreifar allt að 8 mm, stoðblöð kirtilhærð og langhærð oft með purpura slikju. Tungukrýndu blómin allt að 12 mm, allmörg til fjölmörg, blá eða purpura. Svifkrans úr burstahárum.
Uppruni
SM & NV N Ameríka (fjöll).
Harka
4
Heimildir
1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í fjölæringabeð.
Reynsla
Hefur reynst vel í garðinum, harðgerð og falleg tegund, í J5 frá 1991. Auðþekktur frá öðrum kobbum á blöðunum.