Jarðstönglar órglulegir, þegar þeir eru orðnir gamlir, en hnöttóttir meðan þeir eru ungir. Grunnlaufin birtast á eftir blómunum, útlínur kringlóttar, laufin eru handskipt og skiptast aftur, skærgræn , allt að 8 sm í þvermál. Blómin birtast á bognum leggjum sem lengjast og verða bein, 2-3 sm í þvermál, gul, bikarblöð 6, mjó-egglaga, stækka á meðan þeir þroskast. Hunangskirtill 6, pípulaga, þar sem ytri vörin er lengri en sú innri, styttri en fræflarnir. Fræflar um 30. Frævur 6, leggstuttar, fræhýðin 1,5 sm, fræin gulbrún.ilmandi blómin einstök á stöngulendum, 5-8 flipótt háblöð undir blómunum blöðin handskipt, flipótt
Uppruni
S Frakkland til Búlgaríu, hefur numið land víða.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, hnýði sett á 4-5 sm dýpi í ágúst-september.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður undir tré og runna, í steinhæð, í beðkanta.