Dodecatheon hendersonii

Ættkvísl
Dodecatheon
Nafn
hendersonii
Íslenskt nafn
Spaðagoðalykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Purpura til hvítur.
Blómgunartími
Síðla vors og fram á sumar.
Hæð
20-35 sm
Vaxtarlag
Breytilegar plöntur, hárlausar til kirtilhærðar, með æxlikorn.
Lýsing
Lauf lensulaga til spaðalaga eða egglaga, allt að 11 sm á lengd, heilrendir, stundum aðeins bylgjaðir. Blómstönglar allt að 35 sm með 3-9 blóm. Króna með 4-5 flipa, rauðrófupurpura til hvít, allt að 2,5 sm. Frjóþræðir samvaxnir í langa purpuralita pípu. Frjóhnappar gulir til purpura, yddir, tenglin venjulega hrukkótt. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur sljóyddar.
Uppruni
N Ameríka.
Harka
6
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringabeð.
Reynsla
Í F1 frá 1994, hefur þrifist með ágætum.