Dianthus barbatus

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
barbatus
Íslenskt nafn
Stúdentadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Lífsform
Tvíær-fjölær (skammlíf) jurt .
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, bleikur, rauður.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
20-70 sm
Vaxtarlag
Skammlífur fjölæringur, hárlaus eða mjög lítið hærður með slétta, kröftuga stöngla og lensulara-oddbaugótt lauf.
Lýsing
Laufin allt að 10 x 2 sm með áberandi miðstreng og 2 næstum samsíða hliðarstrengi. Blóm legglaus í stórum þéttum blómhnoðum umkrýndum með yddum stoðblöðum, sem eru oftast jafn löng og blómin. Bikar um 1,5 sm, hárlaus, með mjóar yddar tennur. Utanbikarflipar 4, egglaga, ydd, að minnsta kosti jafnlöng bikarinn. Krónutungan um 1 sm, með skegg, rauðpurpura með ljósar doppur við grunninn.
Uppruni
A & SA Evrópa (S- Evrópu - frá Pýreneafjöllum að Karpatafjöllum og Balkanskaga).
Harka
4
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting, græðlingar, sáning.
Notkun/nytjar
Í ker, í steinhæðir, í kanta, í sumarblómabeð eða meðal fjölæringa.
Reynsla
Tæplega meðalharðgerð, skammlíf, oftast ræktuð sem tvíær væri.
Yrki og undirteg.
'Sweet Wivelsfield' er blendingur milli stúdenta og garðanelliku er oft undir D. X allwoodii um 30 sm með færri en stærri blóm.'Gefüllte Blaupunkt-Mischung' (Benery´s Double Mix) um 50 sm há, greinilega ofkrýnd. H3.