Berberis henryana

Ættkvísl
Berberis
Nafn
henryana
Íslenskt nafn
Hinriksbroddur**
Ætt
Mítursætt (Berberidaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
- 3 m
Vaxtarlag
Þyrnóttur, uppréttur runni.
Lýsing
Lauffellandi runni, allt að 3 m hár, greinar dálítið kantaðar, gular til brúnar. Þyrnar stakir eða 3 saman, allt að 3 sm langir. Lauf oddbaugótt, 2-5 sm löng, snubbótt, heilrend eða meira eða minna þyrni-sagtennt, skærgræn ofan, grágræn neðan, hrímug, leggur allt að 1 sm langur. Blómin allt að 1 sm breið, allt að 10-20 í 6 sm löngum klasa. Aldin sporvala, 1 sm löng, dökkrauð, dálítið hrímug.
Uppruni
M-Kína
Heimildir
7
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1992 og gróðursett í beð 1999. Dálítið kal flest ár.