Filipendula ulmaria

Ættkvísl
Filipendula
Nafn
ulmaria
Íslenskt nafn
Mjaðjurt
Ætt
Rosaceae (Rósaætt)
Samheiti
Filipendula denudata (J.Presl & C.Presl) FritschFilipendula megalocarpa Juz.Spiraea contorta StokesSpiraea denudata J.Presl & C.PreslSpiraea ulmaria L.Thecanisia ulmaria (L.) Raf. ex B.D.Jacks.Ulmaria denudata (J.Presl & C.Presl) OpizUlmaria glauca (Schultz) Fourr.Ulmaria pentapetala Gilib.Ulmaria quinqueloba Baumg.Ulmaria ulmaria (L.) BarnhartUlmaria vulgaris HillFilipendula ulmaria subsp. denudata (J.Presl & C.Presl) HayekFilipendula ulmaria subsp. megalocarpa (Juz.) I.A.ShantserSpiraea ulmaria subsp. denudata (J.Presl & C.Presl) Schübler & G.MartensFilipendula ulmaria var. denudata (J.Presl & C.Presl) Maxim.Filipendula ulmaria var. glaberrima (Beck) BeckFilipendula ulmaria var. subdenudata (Fritsch) SchanzerFilipendula ulmaria var. tomentosa (Cambess.) Maxim.Spiraea ulmaria var. concolor Neilr.Spiraea ulmaria var. denudata (J.Presl & C.Presl) Cariot & St.-Lag.Spiraea ulmaria var. glaberrima (Beck) Rouy & E.G.CamusSpiraea ulmaria var. glabrescens Rouy & E.G.CamusSpiraea ulmaria var. unicolor Rouy & E.G.CamusSpiraea ulmaria var. viridis Wallr.Spiraea ulmaria var. viridis Desv.Ulmaria palustris var. denudata (J.Presl & C.Presl) FockeUlmaria pentapetala var. denudata (J.Presl & C.Presl) Asch.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Vex þar sem jarðraki er til staðar til dæmis í deigum grasmóum, lautum, skóglendi og í mýrum.
Blómalitur
Gulhvítur
Blómgunartími
Júlí
Hæð
0.30-0.80 m
Vaxtarlag
Allhávaxin jurt, 30-80 sm á hæð. Stönglar uppréttir, stórblöðóttir, ógreindir eða greinóttir ofan til, blaðmargir og nær hárlausir.
Lýsing
Blöðin stakfjöðruð, stór, stilkuð, gljáandi og græn á efra borði en grálóhærð á neðra borði. Axlablöð við blaðfótinn. Smáblöðin tennt og endasmáblaðið þrískipt.Blómin fimmdeild, mjólkurhvít eða gulhvít, fremur lítil, mörg saman í stórum endastæðum skúfum. Krónublöðin 6-8 mm á lengd, naglmjó, ávöl í endann, töluvert lengri en bikarblöðin, sem eru oddmjó, hærð að utan. Fræflar allmargir. Frævur nokkrar saman í þyrpingu í miðju blómsins, hver um sig með einum stíl og þykku fræni í toppinn. Engar sykrur eru í blóminu en hins vegar sækja skordýr mjög í frjóduftið. Af blómum leggur sérkennilega og þægilega angan. Blómgast í júlí. Mjaðjurtin er hitakær tegund og vex bara villt í hlýrri sveitum landsins og er töluvert ræktuð í görðum. Hún blómgast vel í beitarfriðuðu landi, en myndar bara smáblöð í grassverðinum, þar sem stöðug beit er. LÍK/LÍKAR: Engar.
Heimildir
1,2,3,9, HKr
Reynsla
“Eins og nafnið bendir til var plantan notuð við mjaðargerð. Séu blöð marin leggur af þeim sterka og þægilega lykt og voru mjaðarkerin smurð með þeim að innan og notuð sem krydd í ölið. Seyði eða duft af rótinni var haft við slæmum nýrum. Te, bæði af blöðum og blómum, þótti svitadrífandi, verkeyðandi og græðandi og var því riotað við niðurgangi og blóðlátum og vond sár voru þvegin í því. Mjaðjurt var og höfð til þess að komast að hver stolið hefði.” (Ág. H.)
Útbreiðsla
Algeng um sunnan- og vestanvert landið frá Barðastrandasýslu austur í Hornafjörð og einnig við innanverðan Eyjafjörð. Annars fremur sjaldgæf, sums staðar slæðingur frá ræktun. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Temp. Asía, Evrópa