Dactylis glomerata

Ættkvísl
Dactylis
Nafn
glomerata
Íslenskt nafn
Axhnoðapuntur
Ætt
Poaceae (Grasaætt)
Samheiti
Dactylis glaucescens Willd.; Festuca glomerata (L.) All.; Phalaris glomerata (L.) Gueldenst.;
Lífsform
Fjölær grastegund
Kjörlendi
Vex í sáðsléttum og túnum, slæðingur í grasbrekkum og meðfram vegum.
Blómalitur
Axagnir fjólublágráleitar
Blómgunartími
Ágúst
Hæð
0.50 - 1.20 m
Vaxtarlag
Fjölært, hávaxið og grófgert gras í þéttum þúfum, 50-120 sm á hæð. Stráin upprétt eða útsveigð.
Lýsing
Blöðin grágræn, hárlaus, breið, 4-7 mm, með flötum slíðrum og um 3 mm langri slíðurhimnu. Punturinn með fáum, grófum, stinnum greinum og þéttum smáaxaþyrpingum. Puntgreinar mjög snarpar. Smáöxin mörg saman í þéttum, stórum hnoðum sem standa utarlega á puntgreinunum, mjó, um 6 mm á lengd, 3-4-blóma, á stinnhærðum leggjum, mismikið hærð. Agnirnar fjólubláleitar eða gráar, þrítauga, broddyddar meö stuttum en stinnum hárum á kilinum. Neðri blómögnin fjólubláleit eða gráleit og endar í oddhvassri týtu, 5-tauga með skörpum kanti um miðtaugina. Frjóhirslur ljósbrúnar eða fjólubláleitar, 3-4 mm á lengd. Blómgast í ágúst. LÍK/LÍKAR: Engar. Auðþekktur á stórum, þéttvöxnum blómhnoðum.
Heimildir
1,2,3,9, HKr, Clayton, W.D., Harman, K.T. and Williamson, H. (2006 onwards). GrassBase - The Online World Grass Flora. http://www.kew.org/data/grasses-db.html. [accessed 02 Feb. 2007]; http://www.pfaf.org/database/plants.php?Dactylis+glomerata
Útbreiðsla
Allvíða á láglendi um land allt. Innfluttur, sem sáðgresi í túnum, a.m.k. síðan 1920. Hefur sáð sér út og ílenst á mörgum stöðum.Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Asía, Afríka, Ástralía, Nýja Sjáland. N og S Ameríka.