Carex demissa

Ættkvísl
Carex
Nafn
demissa
Íslenskt nafn
Grænstör
Ætt
Cyperaceae (Stararætt)
Samheiti
C. tumidicarpa Andersson;C. oederi Retz. ssp. demissa (Hornem.) Vicioso;C. flava L. f. demissa (Hornem.) Kük.;C. oederi Retz. ssp. oedocarpa Andersson;
Lífsform
Fjölær grasleitur einkímblöðungur
Kjörlendi
Grasflatir við strendur og engi á láglendi, 0–200 m
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
0.10 - 0.25 m
Vaxtarlag
Myndar litlar þúfur. Stráin bogin eða aðeins slútandi, 10-25 (–35) sm og ná langt upp fyrir stofnblöðin.
Lýsing
Lauf dökkgræn, hlykkjótt og oft aðeins bugðuð. Lauf á blómstönglum styttri eða nær jafnlöng stráum, 1.4–4.6 mm á breidd. Slíðurhimna efsta laufsins venjulega rýr eða engin. Eitt fremur mjótt, aðeins leggjað karlax (1–)3–28 mm efst í blómskipan en 2-4 mjög stuttleggjuð, krinnglótt-aflöng kvenöx (1–)2–5 mm neðar. Axhlíf dökkólfíugræn-græn (2.7–)3.2–3.8(–4.2) × 1.1–1.7 mm á breidd, og dregst smám saman í mjúka, beina eða aðeins íbogna (minna en 28°), aðeins hrufótta trjónu. Trjónan 0.7–1.7 mm. Hnotin 1.1–1.5 × 0.9–1.2 mm. 2n = 70.Lík/Líkar: Gullstör. Grænstör hefur dökkgrænna og stærra hulstur (2,5-4 mm) og stráin ná oftast langt upp fyrir stofnblöðin.
Heimildir
9, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=242357115
Útbreiðsla
Mjög sjaldgæf. Eintök frá Bjarnarhóli, Lýsuhóli og Langavatni á Snæfellsnesi, Ingólfsfirði, Norðfirði og Reykjavík hafa verið greind til þessarar tegundar, en annars óvíst um útbreiðslu (H.Kr.).Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Evrópa, Afríka, Kyrrahafseyjar, ílend í N Ameríku.