Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Acer |
|
|
|
Nafn |
|
glabrum |
|
|
|
Höfundur |
|
Torr. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Gljáhlynur |
|
|
|
Ætt |
|
Hlynsætt (Aceraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Runni - lítið tré |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulgrænn |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Síðla vors |
|
|
|
Hæð |
|
4 - 6 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Runni eða lítið tré allt að 10 m hátt í heimkynnum sínum, en allt að 6 m í ræktun hérlendis. Börkurinn er rauðgrár. Greinar rauðbrúnar, næstum hárlausar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin eru með 3-5 flipa, allt að 12 sm breið, þunn, næstum hjartalaga til fleyglaga við grunninn, hárlaus, dökkgræn á efra borði, ljós-blágræn á því neðra, blaðstilkur grannur, rauður. Flipar hvassyddir eða odddregnir, jaðrar með grófar, tvöfaldar tennur, sem vita fram á við. Blómskipunin hálfsveipur með 7-11 blóm eða stundum að hluta klasi með 3-5 blóm. Skífa er við grunn fræfla eða innan um þá. Aldin um 2,5 sm, hnotir með æðar, vængir samsíða, haldast nær uppréttir eða sveigjast aðeins út til hliðanna, fallega bleikir að sumrinu en ljósbrúnir um haust. Blóm gulgræn. Aðallega sérbýli með karlkyns og kvenkyns blóm á sitt hvorri plöntunni. Haustlitur skærgulur. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Alaska - NV USA (Klettafjöll). |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, meðalrakur-rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
1, 2, http://en.wikipedia.org |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld. Fræ í tvívængjuðum, hárlausum hnotum. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Sem stakstætt tré, í þyrpingar, í beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2002 og gróðursett í beð 2007. Hefur reynst alveg þokkalega. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|