Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lychnis x haageana
Ættkvísl   Lychnis
     
Nafn   x haageana
     
Höfundur   Lemoine.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Logahetta
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skarlatsrauður til sterk appelsínugulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   40-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Skammlíf, fjölær jurt, með allt að 60 sm háa stöngla, sem eru þaktir hæringu, hæringin veit niður á við.
     
Lýsing   Laufin lensulaga, kirtilhærð. Blómskipunin fáblóma, kirtilhærð. Bikar um 18 mm, krónutunga um 20 mm, breið öfugegglaga, sýld og oftast með mjóar tennur á hvorri hlið og breytilegar tennur á jöðrum flipanna, skarlatsrauð til sterk appelsínugul.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, má fjölga með græðlingum síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð í góðu skjóli.
     
Reynsla   Meðalharðgerð, þola illa næðinga og ljókka blómin oft fljótt ef einhver trekkur er á þeim.
     
Yrki og undirteg.   L. x arkwrightii er annar blendingur sem er ekki ólíkur ástarloga (lifir oft 2-3 ár í görðum).
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is