Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Lonicera xylosteum
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   xylosteum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dúntoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   Lonicera segreziensis Lavallee ex Dippel
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi
     
Blómlitur   Gulhvítur
     
Blómgunartími   Sumar
     
Hæð   -3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dúntoppur
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár.
     
Lýsing   Laufin 3-7 sm, egglaga til öfugegglaga eða aflöng, hvassydd eða odddregin, öll dúnhærð. Blómin um mið eða neðri hluta smágreinanna. Króna 1 sm, gulhvít, oft með rauða slikju, með tvær varir, efri vörin klofin að ¼ til 1/3. Fræflar dúnhærðir, við grunninn. Stíll dúnhærður. Ber íflöt-hnöttótt, rauð, sjaldan gul.
     
Heimkynni   Evrópa, Kákasus, Síbería, Kína.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, sendinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í óklippt limgerði, í þyrpingar, í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 1994 og 2004, mjög fallegar plöntur sem þrífast vel og kala mjög lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Dúntoppur
Dúntoppur
Dúntoppur
Dúntoppur
Dúntoppur
Dúntoppur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is