Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Lilium cernuum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   cernuum
     
Höfundur   Komar.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lotlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Lillalitur, purpura, bleikur eða stöku sinnum hvítur, doppur purpuralitar.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60-(90) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Falleg lilja. Stönglar eru með stöngulrætur, allt að 60(-90) sm háir, grænir, stundum með brúnar doppur, gáróttir. Laukar, 3×3 sm, hreistur skörðuð, lensulaga til egglaga, þykk, hvít, slétt. Lauf mjó, minna á gras, 8-15×0,1-0,5 sm, stakstæð, flest á 1/3 hluta (miðhluta) stöngulsins, 1-3 tauga, legglaus. Blóm 1-14, 3,5 sm breið, ilma, í drúpandi klasa, blómleggir útstæðir, 6-10 sm, blómhlífarblöðin mjög mikið aftursveigð, standa stutt, lillalit, purpura, bleik eða stöku sinnum hvít með purpura doppum. Frjó lillalit, aldin 2 sm, fræ 6-7×4,5 m.
     
Heimkynni   Kórea, NA Mansjúría, Ussuri.
     
Jarðvegur   Frjór og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. – third ed. London. http://www.davesgarden.com
     
Fjölgun   Þessari lilju er alltaf fjölgað með fræjum. Hún er notuð í kynbótum á bleikum, pastellitum og hvítum liljum. Kemur fljótt upp af fræi, oft skammlíf.
     
Notkun/nytjar   Beð í góðu skjóli. Hentug til að rækta innanhúss.
     
Reynsla   Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur, var sáð í Lystigarðinum 2011 og gróðursett í beð 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is