Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Aconitum |
|
|
|
Nafn |
|
variegatum |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Snoðhjálmur |
|
|
|
Ætt |
|
Sóleyjarætt (Ranunculaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Hálfskuggi - dálítill skuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Blár, bláfjólublár og hvítur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
100 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Rætur með hnúðum. Stönglar upréttir, oft greinóttir, með lauf. Laufin meira eða minna kringótt, handskipt eða skipt í 5-7 hluta, smálaufin tennt eða flipótt. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómin opinn skúfur, blómleggir útstæðir, hárlausir eða meira eða minn alngullhærðir, blómin blá eða bláfjólublá og hvít, hjálmurinn klukkulaga, yfirleitt hærri en hann er breiður, oft með mjúk, löng hárutsan, sporar gormlaga. Fræhýði oftast 3-5, fræin með vængi, með fjölda fellinga, svört. |
|
|
|
Heimkynni |
|
M & S Evrópa, Tyrkland. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Lífrænn, rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í fjölæringabeð, í raðir, í þyrpingar. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1988 og 2002 og gróðursettar í beð 1993 og 2006, báðar þrífast vel. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|