Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Aconitum loczyanum
Ættkvísl   Aconitum
     
Nafn   loczyanum
     
Höfundur   Rapaics
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lundahjálmur*
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpura til næstum hvít.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 70 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, dúnhærð, stönglar oft kantaðir neðantil, allt að 70 sm háir, lítið greindir, grunnlauf og neðstu laufin með langan legg, nýrlaga-kringlótt eða kringluleit-hjartalaga, 6-15 sm breið, djúp eða grunn 5(7)-klofin, skert og tennt.
     
Lýsing   Blómin purpura til nærri hvít. Blómklasar endastæðir eða í blaðöxlunum, 5-15 sm langi, blómleggurinn um 1 sm, langhærður. Blómin 2-2,5 sm löng, efri bikarblöð langhærð á ytra borði. Frævur 5, með útstæð hár, verða hárlausar.
     
Heimkynni   Japan.
     
Jarðvegur   Frjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = OHWI: Flora of Japan
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sá var til 1998 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is