Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Pulsatilla vulgaris 'Mrs. Van der Elst'
Ættkvísl   Pulsatilla
     
Nafn   vulgaris
     
Höfundur   Mill.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Mrs. Van der Elst'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geitabjalla
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   (3-)12-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Sjá aðaltegund nema hvað blómin eru bleik. Er ef til vill ekki í ræktun lengur.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Sendinn, framræstur, meðalrakur, lífrænn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting eftir blómgun.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru tvær plöntur sem sáð var til 2000 og 2001, gróðursettar í beð 2007 og 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is