Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Pulsatilla vulgaris ssp. grandis
Ættkvísl   Pulsatilla
     
Nafn   vulgaris
     
Höfundur   Mill.
     
Ssp./var   ssp. grandis
     
Höfundur undirteg.   (Wender) Zam.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Geitabjalla
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Föl- eða dökkfjólublá, sjaldan hvít.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   12-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Grunnlauf fjöðruð með um 40, 3-7 mm breiða flipa, laufin koma að blómgun lokinni. Stönglar og reifablöð þétt silkihærð.
     
Lýsing   Blómin verulega stærri, allt að 9 sm, blómhlífarblöð breið oddbaugótt. Knúppar áberandi, þaktir silfurlitu eða gulbrúnu hári.
     
Heimkynni   M Evrópa, Úkraína.
     
Jarðvegur   Lífrænn, léttur, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1993 og önnur sem sáð var til 1999 og gróðursett í beð 2000, báðar þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is