Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Lilium 'Elfin Sun'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Elfin Sun'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   80-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skrautlilja*
Vaxtarlag   Laufóttir stönglar, allt að 80-90 sm háir.
     
Lýsing   Blómin eru meðalstór, gul, vita upp á við.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, Upplýsingar af umbúðunum, http://www.blueridgegardens.ca, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun   Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.
     
Notkun/nytjar   Gróðursetjið laukana 20-30 sm millibili. Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur. Jarðvegur þarf að vera frjór og vel framræstur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla.
     
Reynsla   Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1990, hefur þrifist vel 2002, blóm árlega, lifir 2010.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Skrautlilja*
Skrautlilja*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is