Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Persicaria bistorta
Ættkvísl   Persicaria
     
Nafn   bistorta
     
Höfundur   (L.) Samp.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Slöngusúra
     
Ætt   Súruætt (Polygonaceae).
     
Samheiti   Polygonum bistorta L.
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur eða hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Hárlaus fjölæringur, allt að 60 sm hár, jarðstöngull kröftugur. Lauf 10-20 sm, egglaga til aflöng, snubbótt, þverstýfð við grunninn, jaðrar bylgjaðir. Laufleggur langur, með væng ofantil, stöngullauf þríhyrnd, langydd, legglaus, axlablöð allt að 6 sm, brún.
     
Lýsing   Blóm í þéttum, sívölum öxum, legglaus, 2-5 sm, bleik eða hvít. Blómhlífarflipar 4-5 mm. Aldin 5 mm.
     
Heimkynni   Evrópa, N & V Asía.
     
Jarðvegur   Frjór, djúpur, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í skrautblómabeð, sem stakstæð jurt. Þarf uppbindingu.
     
Reynsla   Harðgerð, auðræktuð en nokkuð breytileg tegund (H.Sig.)
     
Yrki og undirteg.   'Superbum' meira en 75 sm há planta, blómin í þéttu axi, alpafjólubleik. Yrki. Til í Lystigarðinum 2015, bæði planta frá 1991 og önnur sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is