Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Polemonium van-bruntiae
Ættkvísl   Polemonium
     
Nafn   van-bruntiae
     
Höfundur   Britton
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rjóðurstigi
     
Ætt   Jakobsstigaætt (Polemoniaceae).
     
Samheiti   P. caeruleum L. ssp. van-bruntiae (Britt.) J.F.Davidson
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpurablár.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   30-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær, upprétt jurt sem vex upp frá láréttum jarðstönglum, nær allt að 100 sm hæð. Laufin eru úr 7-10 pör af lensulaga eða næstum egglaga smáblöðum.
     
Lýsing   Blómskipunin er hálfsveipur, blómin pururablá með gula miðju. Fræflar og stílar ná langt út úr bjöllulaga krónunni. Þessi tegund er lík jakobsstiga (P. caeruleum) og dvergastiga (P. reptans). Tegundin fjölgar sér bæði með fræjum og með jarðstönglum, myndar hnausa.
     
Heimkynni   Kanada, NE Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, djúpur, blautur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1, https://en.wikipedia.org/wiki/Polemonium-vanbruntiae
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning að hausti.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1990 og gróðursett í beð 1994.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is