Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Sisyrinchium groenlandicum
Ættkvísl   Sisyrinchium
     
Nafn   groenlandicum
     
Höfundur   Böcher
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Grænlandsseymi*
     
Ætt   Sverðliljuætt (Iridaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljósbláleitur.
     
Blómgunartími   Júní-ágúst.
     
Hæð   12-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þýfður fjölæringur með jarðstöngul eða stöngulhnýði og með mjóbandlaga, 1-1,8 mm breið, graslík blöð og grannan, beinan dálítið flatan eða ögn vængjaðan 12-30 sm háan stöngul.
     
Lýsing   Efst á stönglinum eru 1-4 blóm í einskonar sveip, en undir honum eru 2 græn- eða brúnleit, mjó stoðblöð, það ytra um 3-4,5 sm og það innra 1-2 sm langt. Stoðblöðin með himnukant, samvaxin á neðstu 1-2,5 mm. Yfirsætið blóm með 6 krónublöð en aðeins 3 fræfla. Blómblöðin eru oddbaugótt, hvassydd, 0,6-0,9 sm löng, ljósbláleit með dekkri miðrák. Hýðið er grænbrúnt - fjólublátt, dökkt þegar það er fullþroskað, 3-5 mm löng. Fræ 0,7-0,9 mm löng, svört, vörtótt-hrukkótt.
     
Heimkynni   Grænland.
     
Jarðvegur   Fremur magur, þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = T. Böcher & al. 1966.
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum var til ein planta sem sáð var til 2001 og gróðusett í beð 2003, dauð 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is