Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Thalictrum simplex
Ættkvísl   Thalictrum
     
Nafn   simplex
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lofnargras
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpura-ljósgræn.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   50-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, 50-100 sm há, hárlaus eða kirtildúnhærð. Stönglar ógreindir eða greindir frá grunni, sléttir. Stöngullauf upprétt, þau neðstu um 20 sm að leggnum meðtöldum. Laufblaðkan 2-fjaðurskipt, blaðka smálaufa fleyglaga, fremur mjó, kringlótt-tígullaga, breið-egglaga, 2-4 x 1,4-4 sm, grunnur mjófleyglaga til bogadreginn, jaðar með 3 flipa, flipar bogtenntir, bogadregin í oddinn, snubbótt eða ydd. Æðastrengir upphleyptir á neðra borði. Blöðkur efstu laufa smáar, blaðka smálaufa fleyglaga-öfugegglaga, öfugegglaga eða kringlótt, grunnur snubbóttur eða fleyglaga, hvassydd. Mjög líkt ljósagrasi (T. lucidum), en með langa jarðstöngla.
     
Lýsing   Blómskipunin skúfur, 9-30 sm. Blómleggur 1-7 mm. Bikarblöð 4, visna snemma, mjó-oddbaugótt, um 2,2 mm. Fræflar hangandi, um 15, frjóþræðir þráðlaga, frjóhnappar mjó-aflangir, um 2 mm, broddyddir. Frævur 3-6, fræni breið-þríhyrnd. Hnetur legglausar, mjó-egglaga eða mjó-oddbaugóttar, um 2 mm, rif um 8 talsins.
     
Heimkynni   Evrópa, Kína, Japan, Kórea, Mongólía, Rússland, M & SV Asía.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, rakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   1,2, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxon-id=200008240, Flora of China.
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í blómaengi.
     
Reynsla   Ein gömul planta er til undir þessu nafni í Lystigarðinum, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Náttúrulegir vaxtarstaðir eru graslendi, rök engi, klettahryggir.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is