Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Laburnum x watereri 'Vossii'
Ættkvísl   Laburnum
     
Nafn   x watereri
     
Höfundur   (Kirchn.) Dipp.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Vossii'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðagullregn
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumargrænt tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   5-7 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Garðagullregn
Vaxtarlag   Líkara Strandgullregni (L. anagyroides), en fjallagullregni (L. alpinum), en aðeins greinaendar dúnhærðir.
     
Lýsing   Smálauf allt að 7 sm langir, oddbaugótt, hárlaus, æðastrengir dúnhærðir á neðra borði. Blómklasar allt að 50 sm langir, ilma. Aldin þroskast sjaldan, með mjóan væng. Sérdeilis blómviljugt yrki með langa klasa.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, ekki of frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, ágræðsla, sveiggræðsla að hausti.
     
Notkun/nytjar   Stakstætt tré, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Meðalharðgerð planta, fremur erfið í uppeldi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Garðagullregn
Garðagullregn
Garðagullregn
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is