Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Geum elatum
Ættkvísl   Geum
     
Nafn   elatum
     
Höfundur   Wallich ex G. Don.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gildalafífill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Gildalafífill
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 30 sm há.
     
Lýsing   Stöngllauf allt að 3 x 1 sm, mjó-oddbaugótt, hvirfingalauf allt að 30 sm, með 21-31 smálauf, axlablöð mjó, smálauf allt að 2,5 x 2 sm, breið-oddbaugótt, hvassydd eða snubbótt, bogtennt eða tennt, randhærð eða ögn dúnhærð. Blómskipunarlegir allt að 40 sm, 1-3 blóma, bikarpípa allt að 8 mm í þvermál, dumrauð, dúnhærð, flipar allt að 4 x 4 mm, breiðegglaga, utanbikarflipar oddbaugóttir, 2 mm. Krónublöð allt að 1,5 x 1 sm, gul, hálfkringlótt eða öfugegglaga. Fræhnetur allt að 3 mm, sporvala, silkidúnhærð. Stíll allt að 5 mm.
     
Heimkynni   Himalajafjöll.
     
Jarðvegur   Frjór, jafnrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning - skipta reglulega á um þriggja ára fresti.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, sem undirgróður, í kanta.
     
Reynsla   Myndir teknar í Grasagarði Reykjavíkur, en EKKI af réttri tegund. Harðgerð og auðræktuð tegund.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Gildalafífill
Gildalafífill
Gildalafífill
Gildalafífill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is