Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Thalictrum fendleri
Ættkvísl   Thalictrum
     
Nafn   fendleri
     
Höfundur   Engelm. ex A. gray
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skógargras*
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænhvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   - 200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 200 sm há, smádúnhærð. Lauf 2-4 skipt í 3 hluta, efstu laufin næstum legglaus, smálauf allt að 2 sm, bogadregin til hálfhjartalaga við grunninn, 3-flipótt, bogtennt.
     
Lýsing   Blómin einkynja, fjölmörg í skúfum. Bikarblöðin grænhvít, frjóþræðir þráðlaga. Bikarblöð karlblóma allt að 6 mm en minni á kvenblómum. Fræflar lengri en bikarblöðin, frjóþræðir þráðlaga, gulir. Hnetur 7-11, legglausar eða því sem næst, kirtil-dúnhærðar, hliðflatar með 5-6 rif á hvorri hlið.
     
Heimkynni   NV Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning (fersk fræ), skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2012 og gróðursett í beð 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is