Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Abies procera
Ættkvísl   Abies
     
Nafn   procera
     
Höfundur   Rehd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Eðalþinur
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae).
     
Samheiti   Abies nobilis
     
Lífsform   Sígrænt tré.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi, skjól.
     
Blómlitur   ♂ blóm gulbrún, ♀ blóm dökk.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   7-15m (-60m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Beinvaxið með grannri og keilulaga krónu, reglulegur vöxtur, greinar útstæðar, láréttar, kransstæðar.
     
Lýsing   Árssprotar þaktir ryðbrúnum hárum, gulir í fyrstu síðar purpurabrúnir, börkur í fyrstu gráleitur og sléttur með harpixblöðrum á ungum trjám. Barr bandlaga, 2,5-3,5 cm x 1,5-1,8 mm, snubbótt, dökkblágrænt með varaopsrákir bæði á efra og neðra borði, þéttstætt og þekur alveg árssprotana að ofanverðu, þétt aðlægt við grunninn og veit upp og fram á við, skiptast ögn neðan á sprotunum og þar eru nálar útstæðar. Gulbrún karlblóm og dökk kvenblóm, könglar uppréttir á 2 ára greinum, 14-25 cm að lengd, sívalir, með þeim stærstu hjá ættkvíslinni, gulgrænir í fyrstu en verða purpurabrúnir fullþroskaðir, köngulhreistur mjög áberandi utan á könglinum, stoðblöð ydd, löng, ljósgræn og niðursveigð. Brum hnattlaga mjó, útstæð 15-35mm.
     
Heimkynni   NV N Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór en ekki mjög þurr jarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1,9
     
Fjölgun   Með fræi (forkæla fræið í 1 mánuð fyrir sánngu), vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Skógartré í góðu skjóli, beð, stakstæð og sem jólatré.
     
Reynsla   Í uppeldi í garðinum og lítt reynd enn sem komið er. Þolir vel klippingu.
     
Yrki og undirteg.   Abies procera 'Glauca' blár eðalþinur er til í Reykjavík með bláhvítar til silfurgráar barrnálar og útbreiddara vaxtarlaga (fjölgað með ágræðslu).
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is