Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Geum chiloënse 'Mrs. Bradshaw'
Ættkvísl   Geum
     
Nafn   chiloënse
     
Höfundur   Balb. ex Ser.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Mrs. Bradshaw'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðdalafífill (skarlatsdæla)
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Múrsteinsrauður.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   40-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rauðdalafífill (skarlatsdæla)
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 60 sm há.
     
Lýsing   Blóm hálfofkrýnd, múrsteinsrauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, sem undirgróðður.
     
Reynsla   Harðgerð en fremur skammlíf, talin lifa í 3-4 ár (H. Sig.)
     
Yrki og undirteg.   Yrkið er talin afbrigði af tegundinni, gengur einnig undir heitinu 'Feuerball'.
     
Útbreiðsla  
     
Rauðdalafífill (skarlatsdæla)
Rauðdalafífill (skarlatsdæla)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is